Menntun
Vorið 2016 lauk María fornámi í Myndlistaskólanum í Reykjavík og hélt þá í Listaháskólann. Árið 2019 útskrifaðist hún þaðan með BA gráðu í myndlist og vorið 2022 hlaut hún MSc í Umhverfisbreytingum á Norðurslóðum. María stundar nú diplómanám við Listmálarabraut Myndlistaskólans í Reykjavík.
Líkaminn sem listform
María hefur bakgrunn í dansi, en frá fimm ára aldri hefur hún æft einhvers konar dans og þar á meðal ballett í sex ár. Dansinn er því mikilvægt tjáningarform í lífi hennar og list. Líkamstjáning og hreyfing, líkaminn sem form og tenging við sjálfið og ein leið fyrir hana að tjá tilfinningar sínar er gegnumgangandi í list hennar. Líkaminn sem listform leiddi hana í gjörninga og vídjógjörninga sem einkenndu skólagöngu og listferil hennar næstu árin, eða frá 2016-2022.
Ljóð
Samhliða líkamstjáningunni, var tjáning með orðum á blað aldrei langt undan en ljóðagerð hefur alltaf verið hluti af sköpunarferlinu. Ljóðin verða stundum skúffuljóð en á öðrum stundum leika þau mikilvægan þátt í lokaútkomunni. Svo dæmi séu tekin voru ljóð Maríu samstíga vídjóverkum hennar á útskriftarsýningu Listaháskólans 2019 sem og í meistararitgerð árið 2022. Ljóðin eru tilfinningaflaumur og verða til spontant og án mikillar rökhugsunar.
Teikning
Línuteikningin teygir einnig anga sína í listheim Maríu, þó aðeins nýlega hafa teikningarnar verið upp á borðinu. Sérstaklega hefur blekið átt hug hennar, skörp skil ljós og skugga þar sem biksvart blek mætir hvítu blaði. Dramatíkin verður allsráðandi. Blekið er spontant eins og ljóð hennar, og fyrirgefur ekki eða samþykkir fullkomlega öll mistök, eftir því hvernig litið er á. Blekið er því einnig mjög líkamlegt, það er framlenging á hreyfingum og tilfinningum Maríu. Listakonan sem ritskoðar sig ekki á meðan blekgjörningnum stendur, í raun ekki fyrr en velja þarf úr teikningum fyrir sýnigu. Mótívið er jafnan líkaminn.
Málverk
Nýjasta viðbótin er málverkið og mótíf þess er líka líkaminn. Líkaminn í málverkinu fellst líka í áferðinni, en málverk Maríu hafa oftar en ekki nokkuð grófgerða áferð. Hún vinnur þau hratt eins og blekverkin, þó þau myndist í nokkrum lögum.
Sjá instagram hér
Sjá tiktok hér
Sjá Vimeo hér